Það er erfitt að sýna heilan viðburð frá einu sjónarhorni.
Þess vegna myndum við SAMAN.
Viðburðir gerast sjaldan á einum stað í einu. Með tveimur ljósmyndurum náum við að skrásetja meira af því sem raunverulega gerðist og skila efni sem sýnir viðburðinn í heild sinni.
Okkur finnst það einfaldlega skynsamlegra.
Viðburðir eru sjaldnast upplifðir frá einu sjónarhorni.
Okkur finnst myndirnar ekki eiga að vera það heldur.
Gott að vita
Ertu enn að velta einhverju fyrir þér? Við erum alltaf til í spjall.
-
Viðburðir gerast sjaldan á einum stað í einu. Með tveimur ljósmyndurum náum við að fylgjast með fleiri hliðum viðburðarins samtímis og skila fjölbreyttara myndefni. Á meðan önnur okkar myndar það sem er á dagskrá getur hin einbeitt sér að fólkinu, stemningunni og öllu því sem gerist í kringum viðburðinn.
-
Já. Við tökum að okkur verkefni um allt land og er akstursgjald alltaf rætt fyrirfram. Við erum einnig opin fyrir spennandi verkefnum erlendis.
-
Við myndum fjölbreytta viðburði, þar á meðal fyrirtækjaviðburði, ráðstefnur, árshátíðir, afmæli, tónleika, opnanir og aðra sérstaka viðburði.
-
Við mætum á viðburðinn sem teymi og leggjum áherslu á að fanga bæði stemninguna og augnablikin sem gerast á bak við tjöldin. Við myndum fólkið, smáatriðin, viðbrögðin og allt það sem segir sögu dagsins. Að loknum viðburði fáið þið faglega unnið myndasafn tilbúið til deilingar og varðveislu.