Skilmálar SAMAN

Með bókun á þjónustu hjá SAMAN samþykkir viðskiptavinur eftirfarandi skilmála.

Bókun og greiðsla

Bókun telst ekki staðfest fyrr en staðfestingargjald hefur verið greitt. Staðfestingargjaldið gengur upp í lokagreiðslu og er óafturkræft.

Myndir eru ekki afhentar fyrr en full greiðsla hefur borist.

Afhending mynda

Myndir eru afhentar rafrænt í hárri upplausn.

Afhendingartími er að jafnaði 4–8 vikur frá viðburði, nema annað hafi verið sérstaklega samið um.

Viðskiptavinur fær ekki afhentar óunnar myndir né allar myndir sem teknar eru.

Sneakpeak eftir brúðkaupsdaginn er afhent 4-8 dögum eftir brúðkaup.

Vinnsla mynda

Myndir eru unnar í samræmi við stíl ljósmyndara. Innifalið er hefðbundin myndvinnsla, svo sem litaleiðréttingar, birtustillingar og minni háttar lagfæringar.

Umfangsmikil myndvinnsla er ekki innifalin í verði. Séróskir um breytingar, svo sem að fjarlægja hrukkur geta verið gjaldfærðar sérstaklega.

Höfundarréttur og notkun

Allur höfundarréttur að ljósmyndum er í eigu SAMAN.

Um höfundarrétt ljósmyndara gilda höfundarréttarlög nr. 73/1972.

Afhending ljósmynda felur ekki í sér framsal á höfundarrétti né heimild til breytinga á myndunum.

Óheimilt er að breyta myndunum á nokkurn hátt, þar með talið með síum, gervigreindarvinnslu eða annarri myndvinnslu, nema með skriflegu samþykki SAMAN.

Viðskiptavinur hefur heimild til að nota myndirnar til persónulegra nota og birtingar á eigin miðlum. Öll önnur notkun, þar á meðal í auglýsinga- eða atvinnurekstri, krefst sérstaks samkomulags.

Birting mynda

SAMAN áskilur sér rétt til að birta myndir úr verkefnum á vefsíðu, samfélagsmiðlum og í markaðsefni, nema annað hafi verið tekið fram áður en myndatakan eða viðburðurinn fer fram.

Varðveisla mynda

SAMAN varðveitir afhentar myndir í allt að 12 mánuði frá afhendingardegi. Eftir þann tíma er ekki hægt að ábyrgjast að afrit séu til staðar.

Viðskiptavinur ber ábyrgð á að vista og taka afrit af myndum sínum eftir afhendingu.

Samþykki skilmála

Ef engar athugasemdir berast við þessum skilmálum telst viðskiptavinur hafa samþykkt þá við bókun þjónustunnar.