Langar þig að ná myndum af þér og makanum þínum á sama tíma ? Frysta viðbrögð beggja og barnanna ef við á ?

Þess vegna myndum við SAMAN.

Flestir gifta sig bara einu sinni á lífsleiðinni, því er mikilvægt að leyfa honum öllum að líða án annarra truflunar og leyfa okkur að sjá um að frysta alla þessa upplifun fyrir ykkur að eiga um ókomna tíð.

Eftir brúðkaupsdaginn ykkar verða aðeins minningarnar eftir.

Við teljum að þær eigi skilið meira en eitt par af augum.

Rómantíski pakkinn

Athöfn & stutt myndataka
fyrir eða eftir í nálægð

189.900 kr.

Dásamlegi pakkinn

Athöfn & myndataka
staðsetning að eigin vali

289.900 kr.

Klassíski pakkinn

Hálfur dagur
Val um undirbúning eða veislu

350.000 kr.

Heill brúðkaupsdagur
í allri sinni dýrð

Fullkomni pakkinn

420.000 kr.

Áður en stóri dagurinn rennur upp

Ertu enn að velta einhverju fyrir þér? Við erum alltaf til í spjall.

  • Við teljum að tveir ljósmyndarar ættu að vera sjálfsagður hluti af brúðkaupsdegi. Það þýðir einfaldlega meira öryggi.

    Það getur margt gerst á sama tíma þess vegna finnst okkur mikilvægt að mynda SAMAN svo engin viðbrögð, tilfinning, hamingja eða annarskonar uppákoma gleymist og týnist í bunka minninga sem aldrei hafa verið séðar nema með augunum einum.

    Okkur finnst því stór partur af ykkar degi að geta boðið upp á tvo ljósmyndara á betri kjörum. Pössum upp á minningarnar og geymum þær til frambúðar. Það er alltaf hugarró að vita að einhver sé til staðar þar sem sagan er að gerast.

  • Já. Við fylgjum ykkur þangað sem dagurinn ykkar gerist.

    Fyrir brúðkaup utan höfuðborgarsvæðisins bætist við akstursgjald sem við förum yfir með ykkur fyrirfram. Við tökum einnig að okkur valin brúðkaup erlendis og elskum að skoða spennandi verkefni á nýjum slóðum.

  • Við trúum því að gæði skipti meira máli en ákveðin tala.

    Þess vegna teljum við ekki myndir heldur veljum af kostgæfni þær sem segja söguna af deginum ykkar best. Fjöldinn fer eftir lengd og umfangi brúðkaupsins, en þið getið alltaf búist við veglegu myndasafni sem fangar bæði stóru augnablikin og allt það sem gerðist þar á milli.

  • Já, við hittum öll brúðhjón a.m.k. 2 sinnum fyrir brúðkaupið.

    Okkur finnst mikilvægt að kynnast ykkur, fara yfir dagskrána og ræða þær hugmyndir og væntingar sem þið hafið til dagsins. Það hjálpar okkur að undirbúa okkur vel og tryggir að þið getið mætt afslöppuð og örugg á brúðkaupsdaginn.

    Þegar stóri dagurinn kemur viljum við að þið upplifið okkur frekar sem kunnugleg andlit en ókunnuga ljósmyndara. Það sama á við um börnin sem taka þátt í deginum, því þau eru oft afslappaðri og öruggari þegar þau hafa hitt okkur áður.

  • Já, algjörlega. Við ráðleggjum reglulega varðandi staðsetningar út frá árstíma, veðri, fjölda gesta og þeirri stemningu sem brúðhjónin vilja skapa. Hvort sem þið sjáið fyrir ykkur dramatískt landslag, borgarlegt umhverfi eða eitthvað einfalt og tímalaust hjálpum við ykkur að finna stað sem passar ykkar sögu.