Meira en bara brúðkaupsljósmyndarar…við erum með ykkur í gegnum daginn

Þegar þið bókið brúðkaupsljósmyndara eruð þið auðvitað fyrst og fremst að bóka einhvern til að fanga minningarnar frá deginum. En það er svo margt annað sem fylgir því að vera ljósmyndari í brúðkaupi.

Við hjá SAMAN höfum nefnilega komist að því að við erum stundum aðeins meira en bara ljósmyndararnir….. kannski örlitlar brúðkaupsdúlur líka 🤍

Allt þetta litla sem gerist á milli

Á brúðkaupsdeginum er margt sem þarf að ganga upp og það er nánast ómögulegt að skipuleggja hvert einasta augnablik.

Við höfum til dæmis farið með barmblóm á milli staða þegar þau þurftu að komast á réttan stað. Og stundum felst hjálpin bara í því að rétta úr kjól, passa að slörið liggi fallega eða gefa sér smá stund til að róa taugarnar áður en gengið er inn í athöfnina.Þetta eru kannski litlir hlutir í stóra samhenginu, en á svona degi geta þeir skipt ótrúlega miklu máli.

Okkur finnst ekkert sjálfsagðara en að rétta fram hjálparhönd þegar við getum!

Tveir ljósmyndarar, tvö sjónarhorn og fjórar hendur

Einn af kostunum við að vera tvær er að við getum verið á tveimur stöðum í einu.

Á meðan önnur okkar er með brúðinni í undirbúningnum getur hin verið að fylgjast með brúðgumanum. Á meðan önnur fangar stóru augnablikin getur hin verið að mynda litlu augnablikin sem gerast í kring.

Við náum að fanga fleiri hliðar á sama deginum, bæði þau augnablik sem allir sjá og þau sem brúðhjónin vita kannski ekki einu sinni af fyrr en þau fá myndirnar afhentar.

En það að vera tvær snýst ekki bara um fleiri myndir. Það þýðir líka að við getum hjálpast að, brugðist við óvæntum aðstæðum og verið til staðar fyrir brúðhjónin á mismunandi stöðum.

Við viljum að þið getið bara verið í augnablikinu

Okkur finnst mikilvægt að brúðhjónin upplifi sig vel með okkur. Að þau geti verið þau sjálf, hlegið, grátið, verið stressuð eða bara gleymt því í smástund að það sé verið að taka myndir.

Við viljum að myndatakan sé skemmtilegur hluti af deginum, ekki enn eitt verkefnið sem þarf að klára.

Og ef eitthvað óvænt kemur upp? Þá reynum við bara að finna lausn með ykkur.

Við erum kannski ekki brúðkaupsskipuleggjendur, en við erum alveg til í að vera þessar litlu brúðkaupsdúlur þegar þess þarf.

Það er einmitt þetta sem okkur þykir svo vænt um

Að fá að mynda brúðkaup er svo miklu meira en að taka fallegar myndir.

Við fáum að vera viðstaddar ótrúlega persónuleg augnablik, kynnast fólkinu ykkar og fylgjast með degi sem þið hafið kannski undirbúið í marga mánuði eða jafnvel ár.

Og okkur þykir ótrúlega vænt um það traust.

Þess vegna viljum við ekki bara að þið sitjið eftir með fallegar myndir, heldur líka góða upplifun af því að hafa okkur með ykkur.

Eruð þið að skipuleggja brúðkaup árið 2027?

Við erum byrjaðar að taka við bókunum fyrir 2027 og þætti ótrúlega gaman að heyra frá ykkur.

Sendið okkur línu og segið okkur frá deginum ykkar. 🤍

Bergþóra & Hjördís

SAMAN

Next
Next

Hvenær ætti að bóka brúðkaupsljósmyndara fyrir 2027?