Hvenær ætti að bóka brúðkaupsljósmyndara fyrir 2027?
Þegar trúlofunin er komin í höfn og brúðkaupsplönin fara af stað vaknar oft spurningin: Hvenær ættum við að bóka brúðkaupsljósmyndara?
Stutta svarið er einfaldlega: Um leið og þið hafið ákveðið dagsetningu.
Brúðkaupsdagurinn er einn af þessum dögum sem líður hratt hjá. Mánuðir af undirbúningi verða að örfáum klukkustundum og áður en þið vitið af er dagurinn liðinn. Það sem situr eftir eru minningarnar, fólkið sem samgladdist ykkur og myndirnar sem leyfa ykkur að upplifa allt aftur.
Margir byrja að bóka sína þjónustuaðila 12–18 mánuðum fyrir brúðkaupið og því getur verið góð hugmynd að hefja leitina tímanlega. Það gefur ykkur meira svigrúm til að finna ljósmyndara sem passar við ykkar stíl og sýn á daginn.
En hvernig velur maður réttan ljósmyndara?
Við mælum með að skoða heildarsöfn frekar en einstakar myndir, kynna ykkur vinnustílinn og velja einhvern sem ykkur líður vel með. Ljósmyndarinn verður með ykkur stóran hluta dagsins og því skiptir miklu máli að það sé gott samband og traust.
Hjá SAMAN vinnum við tvær saman. Það þýðir að við sjáum daginn frá tveimur sjónarhornum og getum þannig fryst fleiri augnablik á sama tíma. Á meðan önnur okkar er með brúðhjónunum getur hin verið að fanga viðbrögð gesta, stemninguna og öll litlu augnablikin sem gera daginn einstakan.
Ef þið eruð farin að skoða staðsetningar, sali eða aðra þjónustuaðila fyrir brúðkaupið ykkar árið 2027 er góður tími til að hefja leitina að ljósmyndara líka.
Við hlökkum til að heyra frá verðandi brúðhjónum og fá að vera hluti af einum mikilvægasta degi lífs þeirra <3